Flýtilyklar
Félagsmiðstöðin Nýung opnar eftir sumarfrí
Nú fer starf félagsmiðstöðvarinnar Nýungar að fara á fullt og verður það með svipuðu fyrirkomulagi eins og í fyrra. Fastar opnanir fyrir unglinga í 8-10 bekk verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 19:30 – 22:00.
Þriðjudaga og fimmtudaga munum við svo bjóða upp á sérstaka klúbbastarfsemi sem verður auglýst betur síðar.
Strætó mun ganga á milli Egilsstaða og Fellabæjar með sama sniði og á síðasta starfsári.
Fyrsta opnunin fyrir 8-10 bekk verður mánudaginn 26. ágúst kl. 19:30-22:00.
Opnanir fyrir miðstig grunnskóla byrja 2. september og verða auglýstar betur síðar.
Í vetur munum við reyna að koma til móts við sem flesta hvað varðar áhugasvið hvers og eins og bjóða upp á alls konar afþreyingu í formi viðburða, námskeiða og fræðslu.